Nú eru bara tveir dagar í mót og spennan magnast
Upplýsingar fyrir ferð:
1. Ferðir
Mæting er í Ír heimilið á föstudaginn kl:10:00 og verður brottför kl: 10:30. Við munum deila rútu með 6 flokki Ír kvenna og 6 flokki Kr karla.
Setning mótsins er kl: 17:00 á Akureyri og er ætlunin að vera komin um 16:00 norður.
2. Matur
Allur matur er innifalinn í gjaldinu og eiga börnin ekki að hafa pening með sér. Þau fá heitan mat í skólanum, samlokur, ávexti, grænmeti og fl. milli máltíða, ferð í Brynjuís, og glaðning á kvöldvöku.
Stoppað verður í Staðarskála og keyptir hamborgarar bæði á leið norður og heim.
3. Útbúnaðarlisti
Þessi listi er eingöngu til viðmiðunar ☺
Fatnaður
Keppnisföt
Íþróttaskór
ÍR galli ef til er (alls ekki skylda)
Sokkar til skiptanna
Nærföt til skiptanna
Aukapeysa
Aukabuxur
Útiföt
Flíspeysa eða ullarpeysa
Húfa og vettlingar
Inniskór (ekki nauðsynlegt en heppilegt)
Náttföt
Sundföt og handklæði
Almennur útbúnaður
Svefnpoki og koddi
Dýna (ágætt að hafa vindsæng) Tilmæli frá mótshöldurum að ekki sé komið með tvíbreiða vindsæng því skólastofurnar eru litlar og þarf að nýta plássið vel.
Pumpa (ef komið er með vindsæng)
Tannbursti og tannkrem
Hárbursti / greiða
Lesefni
Spil
Lyf (ef þörf er á slíku - þarf þá að láta farastjóra vita)
Vatnsbrúsi
Ef drengirnir ætla að taka með sér síma, Ipod eða leikjatölvur geta hvorki fararstjórar né félagið borið ábyrgð á þeim.
Foreldraráð vill ítreka að drengirnir eiga ekki að koma með vasapening með sér, né sælgæti allir eiga að fá nóg í ferðinni og viljum við að það sama gangi yfir alla.
4. Gott að vita
Foreldrar verða upplýstir hver sé farastjóri hvers liðs fyrir sig ásamt símanúmerum og öðrum upplýsingum sem við eiga.
5. Kostnaður
Kostnaður vegna ferðarinnar er 20.000 kr. á dreng og þarf að greiða það inn á reikning nr: Banki 1113 -26-10936 kt: 30.11.70-3519 í dag 05.10. Við þurfum að greiða mótsgjaldið til KA í kvöld og fyrir rútuna.
6. Sérþarfir
Mikilvægt er að fararstjórar fá upplýsingar um hugsanlegar sérþarfir keppenda svo sem óþol, ofnæmi, lyf sem einstaklingar þurfa að taka reglubundið.
7. Fararstjórar í ferðinni verða
a) Sigurlína Andrésdóttir ( Ómar) S: 699-0845
b) Ketill Már Júlíusson ( Róbert) S: 663-8979
c) Erla Sigurþórsdóttir ( Jóhannes) S: 841-9721
d) Vilhjálmur þorsteinsson ( Aron Orri) S: 665-8298
Gaman væri síðan að foreldrar mættu í einhverju merktu Ír ef það er til.
Bestu kveðjur,
Foreldraráð...
No comments:
Post a Comment