mánudagur, 14. maí 2012

Handboltaskóli ÍR, Bjarna Fritz og Stulla


Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)

Æfingatímar eru eftirfarandi:
 11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00

miðvikudagur, 9. maí 2012

HÆTT VIÐ REYKJARVÍKURMÓTIÐ!

Því miður þá verður ekki Reykjavíkurmót um helgina vegna ónægrar þátttöku! Það voru bara tvö félög sem tilkynntu þátttöku, þess vegna er hætt við mótið.
Það verður æfing á laugardaginn kl 09:00

fimmtudagur, 3. maí 2012

Engin æfing á Laugardaginn 5. maí

Það er engin æfing á laugardaginn 5 maí vegna viðgerða í Seljaskóla

miðvikudagur, 2. maí 2012

Æfingar á Þriðjudögum

Æfingarnar á Þriðjudögum falla niður það sem eftir er að tímabilinu vegna þess að íþróttahúsið í Breiðholtsskóla er lokað, þess vegna bjóðum við öllum þeim sem æfa hjá 6 flokki karla yngri að æfa með eldra árinu á fimmtudögum kl 17:25 - 18:35 í Austurbergi

Kv Elli og Bergur

Skráning á Reykjavíkurmót helgina 11-12 maí



Sæl.

Nú er komið að loka mótinu hjá okkur í vetur og verður það Reykjavíkurmót. Að þessu sinni heldur KR mótið. Vinsamlegast skráið drengina til leiks sem fyrst hér á blogginu undir comment.

mánudagur, 30. apríl 2012

MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING


Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).

Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.

SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING! 
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING. 


Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af


Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR

1 Maí

Það er einginn æfing Þriðjudaginn 1 maí vegna þess að íþrótta húsin eru lokuð.